Sólstafir - Rismál lyrics | LyricsFreak
Correct  |  Mail  |  Print  |  Vote

Rismál Lyrics

Sólstafir – Rismál Lyrics

Svarthvítur í huga mér
Altaf er vetur hér
Hvar eru litir norðursumars
Æskublóm sakleysis?
Eru Draumar bernskunnar
Nú uppi dagaðir?
Já erfitt er að halda í
Lífsins sumarnón
Formúlur ljóss ég rita
Í blárri skímunni
Bakkus mér nú býður í
Skuggabræðra boð
Brestur í gömlum þökum
Heyrirðu stormsins nið?
Hjartarætur fylltar kuli
Svo langt í vorboðann
Milli óttu og árs dagsmáls
Sofa mannanna börn
Og mávagarg bergmálar
Yfir Reykjavíkurborg

Share lyrics
×

Rismál comments