Sólstafir - Nón lyrics | LyricsFreak
Correct  |  Mail  |  Print  |  Vote

Nón Lyrics

Sólstafir – Nón Lyrics

Sólbrot yfir nátthaga
Læðist sifji nætur, stelur minni sálarró
Þögnin þung sem blóð
Brestur tónn eitt sinn fagur
Kyrrð í vetrarríki
Myrkrið mýkir glætan gul
Gæðir kuldann hlýjum yl er nótt fellur á ný
Nóttin þung sem blý
Fönnin kæfir sumarilm
Vetur tekur yfir
Vonin kom með vorinu
En lifði ekki lengi hér á Góumánuðum
Dó í ánauðum
Stoltið drap þá veiku von
Kyrrð í vetrarríki
Rökkvar yfir lífi okkar
Úr fjarlægðinni fögur er ástin vorboðin
Hjartans vorboðinn
Nú grafin er í fönn
Vetur tekur yfir
Mjúkir tónar mosans sofa í djúpu vetrarhúmi
Dúnmjúk skýin étin upp af nöprum grámanum
Sefur illum svefni, í hvaða litum dreymir þig?
Læðist litlaus nóttin kannski inn í huga þinn?
Ekki fann ég guð í gömlu bókaskruddunum
Né hamingju í flösku, ekkert lýsti mína leið
Drápu niður fæti illar draumfarir
Samviskan nagar sálarhræ í illri neyð

Share lyrics
×

Nón comments